28.6.2009 | 09:35
Facebook-inu lokað
Facebook-inu mínu hefur verið lokað.... veit ekki af hverju en ég á víst að hafa "violated Facebook’s terms og use". Ég fór sem sagt ekki í fílu og hætti að vera vinur allra á Face-inu heldur var því bara lokað. Ég nenni ekki að byrja upp á nýtt, allavega ekki strax, geri það kannski eftir sumarfrí. Ég held ég hafi ekki verið að gera neitt af mér, er nú ekki þekkt fyrir að setja inn nektarmyndir eða annað sem er bannað þarna...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.3.2009 | 20:47
Bless..... í bili
Þar sem ég hef oftast ekkert merkilegt að segja þá er ég að hugsa um að hætta þessu bulli hér, í bili allavega, sný kannski aftur ef ég hef eitthvað merkilegt að segja. Vill samt benda þeim sem vilja á flickr síðuna mína: http://flickr.com/photos/oskarsdottir þar set ég stundum inn smá úrtak af þeim myndum sem ég er að taka og svo set ég venjulegar myndir inn á facebook. Endilega kommentið ef þið kíkið við á flickr, gaman að sjá hverjir eru að kíkja við
en ég kveð í bili.

...gógó...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
14.2.2009 | 18:44
dropar
Jæja mér leiddist í dag og þar sem ég nennti ekki að taka til þó að þess þurfi sérlega mikið þá prufaði ég að taka svona dropamyndir eins og maður sér oft. Tókust reyndar bara nokkrar en hér er hluti af afrakstrinum:



Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
7.2.2009 | 22:32
Snjóflóðaleitarnámskeið :)
Þetta fer nú að verða bara myndablogg hérna, ég hef aldrei neitt merkilegt að segja. Alveg ótrúlegt hvað maður hafði mikin tíma í blogg þegar maður var í skóla en ekki þegar maður er komin með vinnu.
En í gær og dag var égá námskeiðií snjóflóðaleit, það var rosalega gaman en á tímabili frekar kalt, vorum líka úti frá svona 10 held ég til 4. En ég tók bara örfáar myndir, var svo mikið bras að troða vélinni aftur í töskuna.
En um helgina þá lærðum við ótrúlega margt og sáum hversu ótrúlega mikilvægt það er að vera með íli ef maður er á ferðinni þar sem snjóflóð getur fallið, það skiptir öllu.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
4.1.2009 | 18:39
Fjórhjólaferð
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
28.12.2008 | 12:04
Styrkjum björgunarsveitirnar í landinu
Eftirfarandi texti er tekinn af visi.is:
"Jón Magnússon, þingflokksformaður Frjálslynda flokksins, hvetur fólk til að spara og kaupa ekki flugelda þetta árið. Með flugeldakaupum sé fólk að henda peningum."
Ég skil ekki hvernig maður í valdastöðu í landinu hetur látið slík orð falla, þetta er greinilega maður sem ekki hefur þurft á björgunarsveit að halda hingað til og veit ekki hvernig starfsemi björgunarsveitirnar virkar. Nú er ég gjaldkeri Skagfirðingasveitar og veit því upp á hár hversu kostnaðarsamt er að reka eina sveit, ég veit hversu kostnaðarsamt það er að fara í útkall fyrir utan þá staðreynd að meðlimir sveitarinn taka sér oft frí frá vinnu til þess að fara í útkall og verða því persónulega fyrir tekjumissi. Ég veit líka fyrir víst að hjálp okkar er ómetanleg.
Svo ég gefi ykkur smá hugmynd um það hvernig sveitinar ná inn peningum til þess að geta starfað þá fáum við styrki frá Landsbjörgu, þeir eru nú ekki neitt svakalega háir en nú nýlega þá var lagt fram nýtt kerfi sem farið er eftir við úthlutun þeirra styrkja. Þar eru ýmsir þættir sem spila inn í t.d. hversu dugleg við erum sjálf að finna upp á fjáröflunum, ef við erum dugleg við það þá fáum við góða einkunn í því og þá aukast líkurnar á hærri styrk frá landsbjörgu. Eins er tekið mið að því hversu góð mæting er í útköll, hversu margir eru skráðir í sveitina, hvernig búnaður sveitarinnar stendur ásamt því sem ytri aðstæður spila einnig inn í sem við getum ekkert gert til að hífa okkur upp, eins og t.d. hversu stóru svæði við búum á.
Flest okkar útköll snúa að því að leita að fólki, bjarga mannslífum, aðstoða fólk í ófærð og fleira á þeim nótunum, fyrir þau útköll fáum við ekki neinar tekjur inn á móti. Hins vegar ef við erum fengin í verðmætabjörgun þá fáum við inn styrki frá tryggingafélögum.
Eins getur lögregla kallað okkur til, t.d. við umferðagæslu eins og þá fáum heldur engar tekjur inn á móti þeim kostnaði sem við verðum fyrir þar.
Það er því nokkuð ljóst að við, björgunarsveitinar í landinu, getum ekki komist af án þess að fá styrki inn á móti öllum þeim kostnaði sem við verðum fyrir við okkar vinnu og því hvet ég alla þá sem eru aflögufærir að versla flugelda af björgunarsveitunum og ekki láta einkaaðila sem selja flugelda plata ykkur, viljið þið ekki frekar styrkja björgunarsveit heldur en eitthvern aðila út í bæ?
Hjálpaðu okkur að hjálpa þér
Að lokum við ég þakka öllum þeim sem hafa styrkt okkur um árin, þá sem hafa í áranna rás komið og styrkt okkur á þorláksmessu og einnig þá sem voru að koma í fyrsta skiptið í ár. Mig langar líka að þakka þeim sem keyptu neyðarkallinn í ár, það var metsala á okkar svæði, þakka þeim sem styrktu okkur hvað varðar jólasveinaheimsóknir og ég gæti talið endalaust áfram. Einnig þakka þeim sem hafa lagt vinnu sína við að hjálpa okkur í fjáröflunum því sú hjálp er einstaklega mikilvæg.
Svo vil ég hvetja ykkur til að farar varlega við meðferð flugelda, nota hlífðargleraugu og lesa bæklinginn hvernig ber að haga sér við meðferð flugelda.
Kveðja,
gógó
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
25.12.2008 | 21:34
Ég fékk í jólagjöf :)
Jólagjöfin frá Gunna 

Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
24.12.2008 | 10:18
Gleðilega hátíð
Amma mín er komin til að vera hjá okkur um jólin, í gær tók hún sig til og setti upp jólagardínur í eldhúsinu hjá mér, setti jóladúk á eldhúsborðið í stíl og setti líka jóladúk á borðstofuborðið
svo ákvað hún að skúra hjá mér gólfið því hún vildi létta undir með mér fyrir jólin
Er hægt að óska sér betri ömmu?
Takk amma 
Mig langar til að óska ykkur öllum gleðilegrar hátíðar og þakka í leiðinni fyrir þær stundir sem við áttum á árinu, ef þær voru fáar þá vona ég að þær verði fleiri á því næsta.
Kveðja,
gógó
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
18.12.2008 | 21:03
Ég er með lag á heilanum :)
og svona fyrir þá sem finnst þessi fyrirsögn ekki vera nægilega góð íslenska eða kjánalega orðað þá er hér fyrirsögn fyrir þá aðila: Ég er búin að vera að syngja eftirfarandi lag mikið undanfarna daga:
Pabbi minn kallakókið sýpur
hann er með eyrnalokk og strípur
og er að fara á ball,
hann er að fara á ball.
Mamma beyglar alltaf munninn
þegar hún maskarar augun
og er að fara á ball,
hún er að fara á ball.
Blandaðu mér í glas segir hún
út um neðra munnvikið.
Ekki mikið kók, ekki mikinn ís,
réttu mér kveikjarann.
Barnapían er með blásið hár
og pabbi yngist upp um
átján ár á nóinu.
Drífðu þig nú svo við missum
ekki af Gunna og sjóinu.
Pabbi minn setur Stones á fóninn
fæst ekki um gömlu partýtjónin,
hann er að fara á ball,
hann er að fara á ball.
Nú skal honkí tonkið spilað
þó svo að mónóið sé bilað,
hann er að fara á ball,
hann er að fara á ball.
Manstu eftir Jan og Kjell,
segir hann eftir gítarsólóið.
Manstu eftir John,
manstu eftir Paul,
réttu mér albúmið.
Þá var pabbi sko með heví hár
en síðan hafa liðið
hundrað ár á nóinu.
Drífðu þig nú svo við
missum ekki af matnum og sjóinu
Það er alltaf sama stressið
sú gamla er enn að víkka dressið
og er að fara á ball,
hún er að fara á ball.
Blandaðu mér í glas segir hún
út um neðra munnvikið.
Ekki mikið kók, ekki mikinn ís,
réttu mér kveikjarann.
Barnapían er með blásið hár
og pabbi yngist upp um
átján ár á nóinu.
Hringdu á bíl svo við missum
ekki af borðinu og sjóinu.
Mamma beyglar alltaf munninn
Þegar hún maskarar augun
og er að fara á ball
hún er að fara á ball.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
13.12.2008 | 16:59
Stelpu og stráka litir
Þegar ég var lítil þá flokkaði ég alla liti í stelpu eða stráka liti.
Stelpulitir:
- Gulur
- Rauður
- Appelsínugulur
- Fjólublár
- Bleikur
- Hvítur
Strákalitir:
- Blár
- Grænn
- Svartur
- Brúnn
- Grár
og svo allir tónar af þeim litum skiptust eftir kynjunum líka. Af hverju ætli manni hafa fundist litirnir kynbundnir? Eins ef ég hugsaði um hunda og ketti þá fannst mér að hundar væru strákar og kettir væru stelpur, ég átti samt marga marga kisustráka. Svo var ég líka viss um að voff þýddi nei en mjá þýddi já.
Var eitthvað svona skrítið sem ykkur fannst þegar þið voruð lítil?
...gógó...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
Tenglar
Ýmislegt tengt hjólum
Áhugaverðar síður
Bloggvinir
Eldri færslur
- Júní 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
- Júlí 2006
- Júní 2006
- Maí 2006
- Apríl 2006
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (9.2.): 8
- Sl. sólarhring: 8
- Sl. viku: 75
- Frá upphafi: 56218
Annað
- Innlit í dag: 5
- Innlit sl. viku: 29
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 4
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

anna-kata
rokkdruslan
vanadis
folkerfifl


















