Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2008

Hvað má éta?

Meirihluti íslendinga eru með svínakjöt í matinn á aðfangadag og flestir éta svínakjöt yfir hátíðarnar. Þetta er frekar fyndið þar sem á jólunum eru flestir að fagna fæðingu frelsarans en í Biblíunni þar er það einmitt nefnt að við megum ekki éta svínakjöt. Þar segir:

Þú skalt ekki eta neitt viðbjóðslegt. Þessi eru þau dýr sem þér megið eta: naut, sauðfé og geitfé, hirtir, skógargeitur, dáhirtir, steingeitur, fjallageitur, antilópur og gemsur. Öll ferfætt dýr, sem hafa klaufir, og þær alklofnar, og jórtra, megið þér eta. Af þeim sem jórtra, og af þeim sem alklofnar klaufir hafa, megið þér þó ekki þessi eta: Úlfaldann, hérann og stökkhérann, því að þeir jórtra að sönnu, en hafa eigi klaufir; þeir séu yður óhreinir, og svínið, því að það hefir að sönnu klaufir, en jórtra ekki; það sé yfður óhreint kjöt. Kjöt þeirra skuluð þér ekki eta, og hræ þeirra skiluð þér ekki snerta.

 Jæja þá hafið þið það, eins gott að taka svínakjötið út af listanum til að guð verði ekki alveg brjál.... svo er líka eitthvað talað um hvaða fugla má éta og hverja ekki.

 

 

gógó 


Hver kýldi Bónus-svínið?

Jæja þá er sölunni á neyðarkallinum lokið. Hann seldist upp hjá okkur hér á Króknum, alls 630 stk. og þökkum við öllum sem studdu okkur Grin

 

En smá hugleiðing, hver kýldi Bónus-svínið í augað? Hér er gömul (og geðveikt fyndin) mynd af bónus-svíninu og svo önnur ný.

  bónus

 B%C3%B3nus_logo

 

 

...gógó... 


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband